Færsluflokkur: Bloggar

Er Hannes heilbrigður?

Er þessi maður ekki heilbrigður? Er hann ekki ein af talsmönnum frjálshyggjunnar sem hampaði snilld útrásar liðsins með orðu eins og þeim að þeyr græddu á daginn og grilluðu á kvöldin.  Var hann ekki ein af hugmyndafræðingunum að einkavæðingunni og ein af þeim sem lagði línurnar að þeim ósköpum sem yfir okkur hafa dunið. Í þessu viðtali sem ég læt slóðina fylgja að þá kynnir hann fyrirlestu sin um snilld útrásarinnar og einkavæðingarinnar. Það fer ekkert á milli mála hverja hann telji vera snillingana á bakvið útrásinna og hversu frábær hugmynd hún var. Því er það með öllu óskiljanlegt hvað maðurinn er að hugsa með þessum mótmælum og hvað hann telur sig hafa til málanna að leggja, sumir kunna bara ekki að skammast sín.  Það er ábyrgðar hlutur af hálfu Háskóla Íslands að slíkur maður fái að kenna börnunum okkar stjórnmálafræði.

http://www.youtube.com/watch?v=AoD8umlAOFs&eurl=http%3A%2F%2Fwww.malefnin.com%2Fib%2Findex.php%3Fshowtopic%3D117914%26hl%3DHannes%2BH%C3%83%C2%B3lmsteinn&feature=player_embedded

 

 


mbl.is Aðsúgur að Hannesi Hólmsteini
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sögur af Bakkabræðrum.

Í tilefni af kastljósi sjónvarpsins í kvöld.

LoL BAKKABRÆÐUR Grin

Þeir bræður bjuggu eftir föður sinn á Bakka og voru kenndir við bæinn og kallaðir ýmist Bakkabræður eða Bakkaflón. Þeir erfðu Brúnku eftir karlinn og létu sér mjög annt um hana. Einu sinni kom hvassviðri mikið og urðu þeir þá hræddir um að Brúnka mundi fjúka, báru því á hana og hlóðu upp með henni svo miklu grjóti sem á henni - tolldi; eftir það fauk hún hvorki né stóð upp framar.

Einu sinni voru þeir bræður enn á ferð og mættu manni sem hafði dýr í barmi sínum sem þeir höfðu aldrei séð. Þeir spurðu hvað þetta dýr héti og til hvers það væri haft. Maðurinn segir að það sé köttur og drepi hann mýs og eyði þeim úr húsum. Það þykir þeim bræðrum mikil gersemi og spyrja hvort kötturinn sé ekki falur. Maðurinn segir að svo megi þeir mikið bjóða að hann selji þeim hann og varð það úr að þeir keyptu köttinn fyrir geipiverð. Fara þeir svo heim með kisu og láta vel yfir sér. Þegar heim kom mundu þeir eftir því að þeim hafði láðst eftir að spyrja um hvað kötturinn æti; fara þeir svo þangað sem maðurinn átti heima sem seldi þeim köttinn. Var þá komið kvöld og fór einn þeirra upp á glugga og kallaði inn: "Hvað étur kötturinn?" Maðurinn svarar í grannleysi: "Bölvaður kötturinn étur allt." Með það fóru þeir bræður heim, en fóru að hugsa um þetta betur að kötturinn æti allt. Þá segir einn þeirra: "Bölvaður kötturinn étur allt og hann bróður minn líka," og svo sagði hver þeirra um sig. Þótti þeim þá ráðlegast að eiga ekki kisu lengi yfir höfði sér, fengu mann til að stúta henni og græddu lítið á kattarkaupunum.

Þá keyptu þeir bræður einu sinni stórkerald suður í Borgarfirði og slógu það sundur svo það væri því hægra í vöfunum að flytja það. Þegar heim kom var keraldið sett saman og farið að safna í það, en það vildi leka. Fóru þá bræðurnir að skoða hvað til þess kæmi. Segir svo einn þeirra: "Gísli-Eiríkur-Helgi, ekki er kyn þó keraldið leki, botninn er suður í Borgarfirði." Síðan er það haft fyrir máltæki: "Ekki er kyn þó keraldið leki.

 


Þeir hefðu þurft að vakna miklu fyrr!!!!!!

Gylfi og félagar hans í ASÍ hefðu betur eitt meiri tíma í að standa vörð um afkomu launþega á misserum  í stað þess að flandrast um landið og tala fyrir ágæti ESB aðildar sem er beinlínis fjandsamleg verkalýðsfélögum. Sú þjóðarsátt sem skrifað var undir var og er ekki pappírsins virði eins og bent hefur verið á og það af formönnum aðildarfélaga ASÍ. Hér hefur verðlag farið upp úr öllu valdi jafnt hjá því opinbera og í einkageiranum á sama tíma og talað er fyrir launalækkunum. Hvernig getur það komið miðstjórn ASÍ á óvart að heimilin eigi erfitt með að standa skil á skuldum sínum þegar svona er haldið á málum. Vita þessir menn ekki að skuldir heimilanna hafa snarhækkað eftir hrunið samfara því að laun almennings hafa að sama skapi snar minnkað. Það er kannski ekki við því að búast að vel launaðir forystumenn launþegahreyfingarinnar geti sett sig inn í stöðu félagsmanna sinna því svo langt eru þeir komnir frá því að deila sömu kjörum. Þó að nú séu vinstri flokkar við völd í landinu, flokkar sem flestir forystumenn þessara hreyfinga vilja kenna sig við þá er komin tími til að þeir vakni af þyrnirósasvefni sínum og fari að tala fyrir málstað félagsmanna sinna því af þeim eru þeir kosnir og fyrir þá eiga þeir að vinna.
mbl.is ASÍ: Bregðast þarf við vanda heimilanna
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Að moka flórinn..

Það er komin tími til að ljúka þessu Icesave máli, margar af þeim hugmyndum sem fram hafa komið hafa einungis styrkt þennan arfa lélega samning og er það til bóta. Ríkisstjórnin hefur spyrnt við fótum í þessu máli og ekki verið fáanleg til neinna breytinga á Icesave samningnum, hver ástæða þess er ætla ég að láta liggja á milli hluta hér en ég held að bókstafirnir ESB hafi mikið með það að gera. Sé það ætlun manna að setja einhverja fyrirvara við þennan samning þá á að ganga frá því svo að þeyr haldi fyrir dómstólum,  því er hugmynd Indefenc hópsins ekki svo vitlaus það er að segja að samningurinn takki ekki gildi með ríkisábyrgð fyrr en Bretar og Hollendingar hafa staðfest breytingarnar eða viðaukana skriflega. Helst hefði ég viljað sjá þennan samning rifin og samið upp á nýtt, en það eru litlar líkur á því að svo verði og því best að ganga frá þessum samningi með þeim hætti að þjóðin geti staðið við hann og átt sér einhverja framtíð án þess að vera steypt í fátæktargildru um ókominn ár.

Forsendur þær sem seðlabankinn og ríkisstjórnin gáfu sér um greiðslugetu þjóðarinnar eru í bestafalli draumórar eða byggðar á svipaðri hagfræði og þeyr aðilar notuðust við sem komu okkur í þessi vandræði, eða er nokkur ástæða til að halda að hér verði í framtíðinni hagvöxtur sem er langt umfram það sem best hefur berið í sögu landsins og er ekki verið að tala um einhverjar fáar prósentur í því viðmiði heldur margföldun á fyrri met árum eða um 150 % aukningu ef ég man það rétt og það ár eftir ár.

Stjórn Vg hefur verið tíðrætt um að hún sé að moka út flórinn eftir fyrri stjórnarherra og talið að þeim herrum væri best komið í ævarandi stjórnarandstöðu, ekki ætla ég að neita því að flórinn þurfti að moka og það sem fyrst en var það hlutverk Vg einnar í þessari ríkisstjórn var Samfylkingunni ekki treystandi fyrir skóflunni? Samfylkingin hefur farið fram með þeim hætti í þessari ríkisstjórn að Vg hefur allfarið séð um verk húskallsins við moksturinn og hafa þeyr haft fátt til málana að leggja um hvernig megi forðast svona mikla uppsöfnun af flór nema að hóta húskallinum brotrekstri eða að búinu verði lokað ef hann moki ekki eins og húsbóndanum hentar. Það er augljóst að húskarlar eiga ekki að hafa á skoðanir á því hvernig búið er rekið, og eins og góðra húskalla er siður þá mótmæla þeyr ekki húsbónda sínum hvað sem þeim kann að finnst um framferði hans og áætlanir um uppbyggingu búrsins og halda áfram að moka flórinn.


mbl.is Funda um Icesave um helgina
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ríkjabandalag.

Þessi hugmynd er ekki svo vitlaus og vel athugandi ef við þurfum að gera bandalag við einhverja þjóð yfir höfuð. Við eigum margt sameiginlegt með Norðmönnum og höfum sótt þangað til búsetu þegar illa hefur árað hér heima, einnig eigum við margt sameiginlegt með þeim, svo sem í fiskveiðum og málefnum norðurslóða og fl og fl.
mbl.is Þverrandi áhugi á ríkjabandalagi
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Ógn við ESB - aðild ??

Þetta er það sem ég hef verið að skrifa um í bloggi mínu undanfarið, ástæðan fyrir þessum linkindum og undirlægju hætti Samfylkingarinnar og hluta þingmanna Vg er vegna þessa. Það hefur alltaf verið vitað að Bretar og Hollendingar muna ekki hleypa ESB aðild Íslendinga í gegn nema að Icesave málið verði afgreitt á þann veg sem þeim þóknast, og þetta vita Samfylkingar menn ósköp vel. En hefur ríkisstjórn Íslands heimild til að nota framtíð lands og þjóðar sem skiptiminnt í viðleitni sinni til að ganga í ESB, hefur hún fengið óskorðað umboð frá þjóðinni til þess?

Nei umsókn um aðild að ESB er ekki tímabær á meðan Icesave málið er óafgreitt, og það munu aldrei nást hagkvæmir samningar í hvorugu málinu fyrir Íslands hönd meðan verið er að blanda þessum tveim málum saman, það ætti öllum að vera ljóst.


mbl.is Icesave ógnar ESB-aðild
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Sátt að nást ??

Ekki fannst mér nú mikil sátta tónn í þeim félögum Bjarna og Sigmundi í fréttunum í kvöld, það á eftir að koma í ljós hvort það orðalag sem fylgja á fyrirvörunum með samninginum sé í takt við kröfur Borgarahreyfingarinnar og þeirra þingmanna Vg sem hafa verið gagnrýnir á samninginn fram til þessa.

Ég gat ekki betur heyrt á Bjarna en að það orðalag sem lögfræðingarnir settu saman hafi verið til lítils gagns og litlu breitt um túlkun samningsins, einungis smá fágun á því sem þegar var búið að ákveða.


mbl.is Sátt að nást um Icesave
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Leið Bucheits ekki fær?

Enn og aftur kemur fram hörð gagnrýni á hvernig staðið var að þessum Icesave samningi og nú frá einum af hæfustu samninga mönnum heims í svona málum. Hvað þarf að koma til svo að ríkisstjórnin með Steingrím J í fararbroddi hlusti? Er þessi ofur trú á eigið ágæti og trú þeirra á hæfni samninganefndarinnar  sem send var til viðræðna við Breta og Hollendinga slík að menn neita að sjá hið augljósa.  Af hverju er það orðið of seint að taka aftur upp þráðinn við Breta og Hollendinga þegar þjóðin stendur frammi fyrir einni stærstu ákvörðun sem hún hefur orðið að taka frá upphafi lýðveldisins. Liggur virkilega svo á að menn séu reiðubúnir að flana að slíkri ákvörðun og telji sig ekki hafa tíma til að grundvalla ákvörðunartöku sína með hliðsjón af ráðleggingum hæfustu manna.  Af hverju var sú leið sem Bucheits leggur til ekki fær. Er það vegna þess að Bretar og Hollendingar vildu ekki fara hana og samninganefndin tók því bara þegjandi og hélt ekki uppi vörnum fyrir málstað okkar? Af hverju er ekki látið reyna á það fyrir dómstólum hvað okkur ber að borga.  Ég trúi því ekki að sú leið sé ekki fær bara af því að Bretar og Hollendingar vilji það ekki. Hvers lags lýðræðis og réttar skipulag búa þessar þjóðir við? Er það ekki vaninn að leitað sé til dómstóla þegar þjóðríki greinir á. Ég kaupi það ekki að annar aðilinn geti samið leikreglurnar án samráðs við aðra hlutaðeigandi aðila. Nei hér er ekki verið að segja okkur alla söguna eða ástæðuna fyrir því að svona mikið liggur við, enda áttu þingmenn ekki að fá að sjá allan Icesave samningin í upphafi málsins, eða eru menn búnir að gleyma hvaða leynd hvíldi yfir honum í byrjun og gerir að vissu leiti enn?


mbl.is Leið Buchheits ekki fær
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Hiti í grasrót VG:

Nokkuð er það augljóst að VG er klofin flokkur bæði hvað varðar ESB og Icesav málið, það er nú að koma æ betur í ljós. Ég sem fyrrverandi félagi í VG er að skynja að tvær fylkingar eru að myndast í flokknum í kringum þessi mál og virðist sumum vera stjórnarsamstarfið hugleiknara en málefnin sem við er að fást. Í aðdraganda ESB kosninganna á alþingi reyndi grasrótin allt hvað hún gat til að láta í ljós skoðanir sínar á því máli en sumir þingmen VG völdu að hlusta ekki á þær viðvaranir og hunsuðu þær og báru því við að þeir kisu samkvæmt sannfæringu sinni, það var svosem gott og blessað þó svo að sú yfirlýsing og afstaða hefði mátt koma fram fyrir kosningar, í stað þess völdu þessir þingmenn að koma fram undir fölsku flaggi í því máli og hafa valdið flokknum ómældum skaða. Ég er því ekki hissa að mikill hiti sé í grasrótinni, og margir tengja þessi tvö mál saman sem og þau eru. Afstaða ríkisstjórnarinnar og þá aðallega Samfylkingarinnar til Icesave samningsins afmyndast öll í kringum ESB umsóknina þar sem nauðsynlegt er að sem mestur friður ríki í kringum Icesave til að styggja ekki ESB batteríið og Breta og Hollendinga, því án þeirra förum við ekki þar inn svo mikið er víst, en ég held að þingmenn VG séu farnir að áttasig á því að þessi skollaleikur getur orðið þjóðinni dýrkeyptur og því er það orðið spurning hvað langt á að teygja sig til móts við ESB draum Samfylkingarinnar áður en allt er komið á kaldan kol í flokknum og hjá þjóðinni það svo að ekki verður aftur snúið. Þess vegna held ég að þau átök sem birtast innan VG séu fyrst og fremst um hvar eigi að setja mörkin við Samfylkinguna og hversu dýru verði félagsmenn VG og forustan vil borga fyrir ríkisstjórnar samstarfið. þessu þarf að svara og það fljótlega því fyrirtækin og heimilin geta ekki beðið með sín vandamál á meðan þessi skollaleikur á sér stað. Þetta yfirsandandi sumarþing hefur nú að mestu leiti farið í þessi tvö mál, mál sem hafa klofið þjóðina í herðar niður og aukið á sundrung meðal hennar, ríkisstjórnin hefur valið að leggja ofuráherslu á ESB með Icesave tenginguna sem birtast í þeim arfalélega samningi í stað þess að þjappa henni saman til þess að takast á við komandi erfiðleika, og við skulum gera okkur grein fyrir því að framundan eru mikill niðurskurðir hjá ríkinu og hjá heimilunum og því erfiðir tímar framundan og því brýni nauðsyn en oft áður að þjóðin takist á við það verkefni sameinuð en ekki sundruð.
mbl.is Mikill hiti í grasrót VG vegna Icesave-málsins
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

Er Ögmundur örlagavaldurinn eða??

Ég fagna því að þingmenn VG skuli kjósa og fara eftir sannfæringu sinni, var ekki einmitt firr í sumar talað um að þeim bæri að gera það. Að Ögmundur og fleiri þingmenn VG skuli ætla að fara þá leið er bara ástæða til að hrósa þeim fyrir. Samfylkingin verður að fara átta sig á því að hún er í tveggja flokka stjórn þar sem hún ræður ekki öllu. En það verður ekki langt í að menn á þeim bæ fara að tala um svik við stjórnarsamstarfið og að þingmenn VG séu ekki hæfir í stjórn, ég veit að Samfylkingunni svíður það að þingmenn VG hafi sjálfstæðar skoðanir og láti ekki kúga sig út í það endalausa. Eins og ég hef skrifað um áður þá þurfa þessir flokkar að fara að gera það upp við sig á hvaða forsendum samstarf þeirra á að vera. Er Ögmundur örlagavaldurinn eða er það þvermóðska Samfylkingarinnar?


mbl.is Stjórnarsamstarf undir Ögmundi komið
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband