Mótmæli..........
7.6.2009 | 20:37
Það er farin að sækja á mig efasemdir um þessa ríkisstjórn. Fyrst samdi VG við Samfylkinguna um ESB aðildarumsókn og það þvert á ályktun flokksþings VG og fyrri loforð í kosningabaráttunni, allt var það gert til að hægt væri að mynda vinstri stjórn og nú á að ganga frá Icesave skuldbindingunum með þessum hætti, hvað gengur mönnum til? Hefur Íslenska þjóðin efni á að borga á milli 400 og 500 miljarða fyrir þessi ósköp, hvar á að taka þessa peninga? Er það virkilega svo að þjóin eigi að vera næstu áratugina að borga fyrir fjárfestinga fylliríið hjá þessum einkafyrirtækjum. það á sem sagt að einkavæða gróðann en ríkisvæða skuldirnar sem þessi fyrirtæki og eigendur þeirra komu sér í, það er mikið réttlæti í því, eða er kannski verið að greiða fyrir væntanlegum aðildarviðræðum við ESB með þessari aðgerð?. Það er komin tími til að fólk láti í sér heyra og krefjist þess að sú skjaldborg sem átti að slá um heimilin í landinu fari að líta dagsins ljós í stað þess að dansa í kringum Breta og Holendinga. Það á að láta reina á réttarstöðu okkar í þessu máli, þó svo að það skelfi ESB risanna í Brussel.
Hugsanleg Icesave mótmæli á Austurvelli | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Að sjálfsögðu hefði verið eðlilegt að mál sem þetta fengi rétta meðferð og hefði verið tekið fyrir dómstóla. Það er enn ekki of seint, en verður það seinnipartinn á morgun ef Samfylkingin fær að ráða.
Axel Þór Kolbeinsson, 7.6.2009 kl. 22:49
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.