Þetta er náðarhöggið fyrir marga.

Hvernig eiga launþegar sem eiga varla fyrir afborgunum lána sinna og hafa tæplega til hnífs og skeiðar að bæta við sig hærri skötum. Hefur ríkisstjórnin ekkert lært af þeim upplýsingum sem fram hafa verið bornar um stöðu heimillan, er þetta sú skjaldborg sem heimilunum var heitið í vor. Það eru takmörk fyrir því hvað hægt er að pína fólk og ríkisstjórnin er nú með þessu skattahækunum að veita fjölda heimilla náðarhöggið. Sú leiðrétting sem átti að heita að gerð væri á lánum fólks um síðustu mánaðamót er nú fokin út um gluggann og gott betur og hægt að fullyrða að framundan er holskefla gjaldþrota hjá heimilum landsins. Þetta er náðarhöggið fyrir marga..
mbl.is 47% skattur á launatekjur?
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Sæll Rabbi,

Venjulegir launþegar eru í mesta basli eins og þú segir og eiga tæplega í sig og á.

Varðandi leiðréttingu á lánum sem taka á  gildi 1. des. - þá get ég ekki séð að það sé nema í hæsta lagi ,,bjarnar-greiði". Skv. fundi hjá Hagsmunasamtökum heimilanna hjálpar þetta ekki nema brota-broti af fólki. Eins og að pissa í skóinn sinn!

Áfram á höfuðstóll lána okkar að vera óbreyttur skv. vísitölu neysluverðs, en afborganir næstu 2-3 ár verða lægri en hækka síðan umtalsvert, ef að ég var að skilja rétt.  Tekin voru fjöldi dæma með mismunandi forsendum.

Endilega hafið samband við Hagsmunasamtökin og athugið hvað rétt er í hverju máli fyrir sig.

Takk fyrir skrifin Rabbi - lít alltaf inn!

kv.

Inga sem ætlar ekki að breyta sínum afborgunum.

Það voru

inga (IP-tala skráð) 9.11.2009 kl. 22:05

2 Smámynd: Sædís Ósk Harðardóttir

Algjörlega sammála þér Rafn

kv. sædís

Sædís Ósk Harðardóttir, 9.11.2009 kl. 22:28

3 Smámynd: Jóhann Elíasson

Þakka þér fyrir mjög góða grein, þarna tekst þér mjög vel að segja á mannamáli, það sem ég reyndi að böggla út úr mér á minni síðu.

Jóhann Elíasson, 9.11.2009 kl. 22:47

4 Smámynd: Rafn Gíslason

Inga , Sædís, og Jóhann þakka ykkur fyrir innlitið.

Já ég er hættur að skilja hvernig menn ætla heimilunum að bera þessar birgðar, það er fyrir löngu komið nóg af þessari vitleysu. Ríkisstjórnin verður að horfast í augu við þá staðreynd að hin almeni borgari klárar ekki meiri birgðar en þegar er orðið.

Rafn Gíslason, 10.11.2009 kl. 00:14

5 Smámynd: Jóhannes Ragnarsson

Heildarlaun Útborgað (Núverandi) Útborgað (Nýja fyrirkomulag)

150

136.5

138

200

168

170

250

199.5

202

300

231

 231.5

350

262.5 

261

400

294

 290.5

450

325.5

320

500

357

 349.5

550

 388.5 

376

 

 

 

800

538

508.5

1000

648

 614.5

Jóhannes Ragnarsson, 10.11.2009 kl. 07:58

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband