Þokast í hvaða átt.

Hefur það nokkuð upp á sig að endurnýja eða gera annan stöðuleikasáttmála, sá sem skrifað var undir í vor hélt ekki og engar líkur á að nýr sáttmáli muni gera það heldur. Það er einnig nokkuð ljóst af ummælum fulltrúa AGS hér á landi að sjóðurinn setur sig upp á móti lækkun stýrivaxta og þar með er það ljóst að ríkisstjórnin og seðlabankinn mun ekki lækka þá í bráð nema með leifi frá AGS. Það er nefnilega þannig að nú eru 2 stjórnarherrar í fjármálaráðuneytinu, það er að segja ríkisstjórn Íslands og AGS og því haldlitlir þeir samningar sem ríkisstjórnin gerir við samtök atvinulífsins. Gylfa Arnbjörnssyni og kollegum hans í ASÍ er það sennilega ekkert ljúft að sverfa að vinum sínum í ríkisstjórninni en það er bara svo að hann gerir sér trúlega grein fyrir að framtíð hans trúverðugleiki sem forustumaður ASÍ er í veði. Margir af forustumönum verkalýðshreyfinganna í landinu höfðu efasemdir um sáttmálan sem skrifað var undir í vor og töldu að hann myndi ekki halda og er spá þeirra að verða að veruleika, því á ASÍ forustan allt undir að sú spá reynist ekki rétt.
mbl.is Þokast áfram í viðræðum
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég tel að fulltrúar VG í Ríkisstjórn hafi ekki upplýstir um hvað var samið um í þessum stöðuleikasáttmála,þar eru hlutir í virkjunarmálum sem mundu þurka VG út ef þeir kæmu til framkvæmda í neðri Þjórsá.Guðfríður Lilja Álfheiður Ingadóttir og Atli Gísla hafa gert heiðurs samkomulag við kjósendu um að standa vörð um neðri Þjórsá. Kveðja til ykkar úr KÓP.

Guðrún Hlín (IP-tala skráð) 28.10.2009 kl. 17:53

2 Smámynd: Ásthildur Cesil Þórðardóttir

Burt með AGS.

Ásthildur Cesil Þórðardóttir, 2.11.2009 kl. 12:09

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband